28.05.1980
Sameinað þing: 68. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3198 í B-deild Alþingistíðinda. (3139)

Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 28. maí 1980.

Formaður þingflokks Framsfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Guðmundar G. Þórarinssonar, 12. þm. Reykv., sem nú dvelst erlendis, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Haraldur hefur áður átt sæti á þessu Alþingi og þarf því ekki að fara fram athugun á kjörbréfi hans og býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.

Þá er hér annað bréf:

„Reykjavík, 28. maí 1980.

Formaður þingflokks Framsfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Sigurgeirs Bóassonar, 1. varamanns Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, sem ekki getur lengur setið á þingi vegna anna, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Finnbogi Hermannsson kennari, taki sæti á Alþingi í hans stað.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Til forseta Alþingis.“