28.10.1980
Sameinað þing: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

349. mál, fuglaveiðar útlendinga hér á landi

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Að fengnum þessum upplýsingum hv. fyrirspyrjanda má hann að sjálfsögðu búast við því að þurfa að gefa nánari skýrslu um málið. Ég óska þess eindregið að hann skrifi það bréf, sem hann bauðst til þess að gera hér í ræðustólnum, og veiti að bragði allar upplýsingar sem hann hefur komist að í þessu máli.