07.05.1981
Sameinað þing: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4078 í B-deild Alþingistíðinda. (4225)

62. mál, merkingaskylda við ríkisframkvæmdir

Frsm. (Garðar Sigurðsson):

Herra forseti. Atvmn. hv. Sþ. hefur fjallað ítarlega um þetta málefni og rætt það á allmörgum fundum sínum, samt ævinlega sammála. Og n. skrifar sem einn maður undir það álit að leggja til við hið háa Alþingi að þessi till. til þál. verði samþykkt.