25.05.1981
Neðri deild: 110. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5015 í B-deild Alþingistíðinda. (5382)

Umræður utan dagskrár

Eggert Haukdal:

Herra forseti. Ég vildi aðeins leyfa mér að þakka hæstv. landbrh. fyrir undirtektir við spurningum mínum og vænta þess fastlega, að röggsamlega verði hér á eftir fylgt, ráðunautaþjónustunni verði beint að kalinu sérstaklega og síðan fylgi á eftir ráðstafanir sem nauðsynlegar eru.