16.12.1981
Efri deild: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)

69. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. sjútvn. um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 5 frá 13. febr. 1976, um útflutningsgjald af sjávarafurðum, með síðari breytingum.

Mörg orð þarf ekki um þetta mál. Hæstv. viðskrh. mælti fyrir þessu frv. í fjarveru sjútvrh. og kom fram í máli hans það er skiptir máli. Er ekki ástæða til að endurtaka það hér.

Afgreiðsla nefndarinnar var samhljóða og leggur hún til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá Nd. Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Guðmundur Bjarnason, Geir Gunnarsson, Guðmundur Karlsson, Egill Jónsson, Kjartan Jóhannsson og Gunnar Thoroddsen.