05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3630 í B-deild Alþingistíðinda. (3168)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Frsm. 3. minni hl. (Guðrún Hallgrímsdóttir):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði á þskj. 61. Eins og fram kemur í athugasemdum við frv. er gert ráð fyrir tekjum samkv. því í fjárlögum yfirstandandi árs. 3. minni hl. leggur því til að frv. verði samþykkt óbreytt í samræmi við ákvæði fjárlaga. Undir nál. þetta skrifa Guðrún Hallgrímsdóttir, Halldór Ásgrímsson og Ingólfur Guðnason.