20.04.1982
Sameinað þing: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3964 í B-deild Alþingistíðinda. (3489)

247. mál, mat á eignum Iscargo hf.

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég tek undir það, að hæstv. samgrh. hefur engin svör veitt í þessu máli. Hann segir að ég hafi ekki svarað spurningu sem hann bar fram. Ég vil segja við hann: Þær upplýsingar, sem ég fékk, voru fullkomlega lögmætar, fengnar eftir lögmætum leiðum, en hæstv. ráðh. kemur nákvæmlega ekkert við hvaðan og hvernig ég fékk þær.

Þá vil ég líka, vegna þess að hæstv. samgrh. hefur engu svarað í þessu máli, beina þeirri spurningu til hæstv. fjmrh., af því að hann er hingað kominn, hvað líði því mati á eignum Iscargo sem samþykki var hér á hinu háa Alþingi að færi fram.