18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (1157)

1. mál, fjárlög 1983

Egill Jónsson:

Herra forseti. Með tilvísun til orða hæstv. fjmrh., er hann viðhafði við umr., um að ábyrgðarheimild vegna lántöku Áburðarverksmiðju ríkisins hjá Seðlabanka Íslands sé einungis einn þáttur þess að tryggja rekstur hennar, og að þess má þá vænta að um málið verði fjallað síðar í vetur á grundvelli þess að heildarlausn á vanda Áburðarverksmiðjunnar fáist, segi ég já.