09.03.1983
Efri deild: 64. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2786 í B-deild Alþingistíðinda. (2689)

238. mál, fangelsi og vinnuhæli

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. fjh.- og viðskn. fyrir rösklega meðhöndlun á frv. þessu. Ég fellst á það, að eins og frv. kemur frá n. kunni það að vera meir við hæfi. Vildi ég svo aðeins í lokin láta í ljós þá skoðun mína að betur væri allar deildir jafnvel menntar og hv. Ed. Þar gefast æ því betur gáfaðra manna ráð sem fleiri koma saman.