15.12.1982
Sameinað þing: 30. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

1. mál, fjárlög 1983

Eyjólfur Konráð lónsson:

Herra forseti. Eins og ég hef margsinnis sagt, m.a. úr þessum ræðustól, þá tel ég að leggja eigi Framsóknarstofnun — Framkvæmdastofnun, — við skulum hafa það Framsóknarstofnun, en hún heitir nú víst Framkvæmdastofnun, ég tel að hana eigi að leggja niður — gjarnan Framsfl. líka. (Gripið fram í.) Við skulum gleyma því. En það er allt annað mál hvort greiða á fé til Byggðasjóðs. Byggðasjóð má reka með mjög litlu starfsmannahaldi og litlum kostnaði. Þetta er auðvitað mál sem þarf að ræða miklu nánar. Þess vegna greiði ég ekki atkv. nú.