16.12.1982
Neðri deild: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (961)

103. mál, meðferð opinberra mála

Frsm. meiri hl. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Allshn. þessarar deildar hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á lögum nr. 74 frá 21. ágúst 1974, um meðferð opinberra mála, en frv. þetta gengur út á það að hækka sektarheimildir gildandi laga lögreglustjórum og lögreglumönnum til handa í samræmi við þá verðlagsþróun sem verið hefur í landinu síðan á árinu 1980, þegar þessar sektarheimildir voru síðast endurskoðaðar.

Meiri hl. allshn. er sammála um að leggja til við þessa deild að frv. verði samþykkt.