03.04.1984
Sameinað þing: 75. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4389 í B-deild Alþingistíðinda. (3760)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Við höfum haft þessar utandagskrárumr. í hartnær tvo klukkutíma og fimm hafa þegar talað. Á mælendaskrá eru átta nú. Það er einsætt að þessum umr. verður ekki lokið á þessum fundi. Undir venjulegum kringumstæðum hefðum við freistað þess að halda eitthvað áfram, en nú stendur þannig á að fundinum verður að ljúka. Þess vegna er frestað þessum utandagskrárumr. Við höldum þessum leik áfram á næsta fundi.