07.05.1984
Neðri deild: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5448 í B-deild Alþingistíðinda. (4734)

167. mál, veiting ríkisborgararéttar

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar eins og það liggur fyrir á þskj. 727, en þannig afgreiddi hv. Ed. málið.

Í meðferð málsins í Ed. var fjallað um það á sameiginlegum fundum allshn. beggja deilda. Allshn. Ed. bar fram brtt. við frv. þar sem bætt var við nöfnum margra aðila sem nefndirnar voru sammála um að rétt væri að veita ríkisborgararétt að þessu sinni.

Ég vænti þess því að þetta frv. eigi greiða leið í gegnum þessa hv. deild og legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.