08.05.1984
Sameinað þing: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5520 í B-deild Alþingistíðinda. (4787)

Um þingsköp

Forseti (Helgi Seljan):

Vegna orða hv. 8. þm. Reykv. minni ég á áminningu hv. aðalforseta Sþ., Þorv. Garðars Kristjánssonar, hér fyrir nokkru, áminningu til nefndarformanna um að hraða verkum sínum. Ég tek undir þau orð hans. Ég vænti þess að nefndir starfi vel að málum til þingloka sem ekki munu langt fjarri ef svo fer fram sem horfir og nauðsynlegt að þar taki allar nefndir nokkuð jafnt á varðandi þau mál sem eftir eru í afgreiðslu.