11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5789 í B-deild Alþingistíðinda. (5110)

24. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti fjh.- og viðskn. sem tók til athugunar 24. mál þingsins á þskj. 24 sem er frv. til l. um breyt. á lögum nr. 120 frá 31. desember 1976, um tollskrá o. fl., með síðari breytingum. Þetta frv. er staðfesting á brbl. sem gefin voru út í fyrrasumar.

N. hefur rætt þetta frv. á fundum sínum og leggur til að það verði samþykkt. Undir þetta nái. skrifa allir nm.