18.05.1984
Neðri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6279 í B-deild Alþingistíðinda. (5727)

155. mál, kosningar til Alþingis

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Þrátt fyrir andstöðu mína við þetta frv. vil ég geta þess að þar sem 1. gr. frv. fjallar um breytingar er rýmka kosningarrétt yngri kynslóðarinnar og ég er hlynntur því segi ég já, en er andvígur þessu frv. sem heild og mun ekki greiða atkv. gegn einstökum greinum, en greiða atkv. gegn frv. þegar það kemur til 3. umr. Ég segi já.