12.12.1984
Efri deild: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1831 í B-deild Alþingistíðinda. (1315)

148. mál, fæðingarorlof

Flm. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Virðulegi forseti. Á þskj. 153 ber ég fram frv. til l. um breytingu á lögum nr. 97/1980 um fæðingarorlof, breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 67/1971 með síðari breytingum.

Eins og segir í grg. með frv., með leyfi forseta, var frv. þetta áður flutt á síðasta löggjafarþingi, en náði þar ekki fram að ganga. Það er því endurflutt hér nú óbreytt í öllum helstu atriðum.

Meginmarkmið frv. er að koma til móts við breyttar þjóðfélagsaðstæður hér á landi — (Forseti: Að gefnu tilefni held ég að það verði að geta þess að það er alltaf mjög ánægjulegt að fá góða gesti sem áheyrendur á þingpalla og það er vissulega ánægjulegur sá áhugi sem fram kemur hjá áheyrendum að vilja fylgjast með því sem verið er að fjalla um hér á löggjafarsamkomunni, Alþingi Íslendinga. En slíkar heimsóknir eru þó bundnar við það að þær trufli ekki þingfundinn sem stendur yfir. Þetta gildir jafnt um eldri gesti sem yngri og ég verð að vænta þess að gestir á þingpöllum taki tillit til þess.) Ég vil taka fram ef ég má segja hér um fáein orð, að sá umgangur, sem var hér í þingsalnum rétt áðan, truflaði mig meira en barnahljóðin — þeim er ég vön. Ég vil geta þess að hér munu vera staddar konur sem eru heimavinnandi og komast ekki á þingpalla til að fylgjast með málum, sem þær hafa áhuga á, öðruvísi en með börnin. Því er gestkvæmt hjá okkur á þingpöllum núna. (Gripið fram í: Þm. talar við þdm. þegar hann er að tala úr ræðustól.) Ég var að tala við forseta. En nú skal ég hefja mál mitt við þdm.

Eins og segir í grg. með frv., með leyfi forseta, var frv. þetta áður flutt á síðasta löggjafarþingi, en náði þar ekki fram að ganga. Það er því endurflutt hér nú óbreytt í öllum helstu atriðum.

„Meginmarkmið frv. er að koma til móts við breyttar þjóðfélagsaðstæður hér á landi og tryggja velferð barna og foreldra þeirra tímabilið eftir fæðingu barns.

Á undanförnum árum hefur íslenskt þjóðfélag tekið miklum stakkaskiptum. Þær breytingar hafa m.a. orðið á högum fólks hér á landi að það er nú fjárhagsleg nauðsyn fyrir fjölmörg heimili í landinu að hafa tvær fyrirvinnur. Á þetta ekki síst við um þá aldurshópa sem nú eru að koma sér upp húsnæði, hasla sér völl í atvinnulífinu og eignast börn.

Nauðsyn þess að hvert heimili hafi tvær fyrirvinnur sést m.a. á þeirri gífurlegu aukningu sem orðið hefur á atvinnuþátttöku kvenna undanfarin ár. Árið 1960 unnu um 29% kvenna utan heimilis, en árið 1982 voru yfir 80% kvenna útivinnandi. Það gefur auga leið að við slíkar aðstæður gefst konum lítið svigrúm til þess að sinna nauðsynlegri umönnun ungbarna. Heimilin bera það ekki fjárhagslega að önnur fyrirvinnan láti af launuðum störfum utan heimilis til þess að sinna því mikilvæga hlutverki að annast um barn á fyrsta æviskeiði þess. Enn fremur fer þeim heimilum sífellt fjölgandi þar sem fyrirvinnan er aðeins ein, en nú mun áttunda hvert barn í landinu vera á framfæri einstæðrar móður.

Það ber því brýna nauðsyn til að við skipan fæðingarorlofsmála sé komið til móts við þessar breyttu þjóðfélagsaðstæður og fólki gert fjárhagslega kleift að eignast börn. Það verður ekki gert nema með því að samhæfa hin mismunandi og félagslega nauðsynlegu hlutverk kvenna, móður- og fjölskylduhlutverk þeirra annars vegar og nauðsynlega þátttöku þeirra í atvinnulífinu hins vegar. Auk þessa meginmarkmiðs er með frv. þessu ítrekað mikilvægi barnaumönnunar og móður- og föðurhlutverksins fyrir þá einstaklinga, sem í hlut eiga, og fyrir samfélagið í heild.

Breytingar frá núverandi lögum skv. þessu frv. eru eftirfarandi:

Gert er ráð fyrir lengingu fæðingarorlofs úr þremur mánuðum í sex mánuði fyrir allar konur. Greiðsla fæðingarorlofs tryggir móður næði og öryggi til samskipta við barn sitt eftir fæðingu þess. Þó að sex mánaða gamalt barn sé enn háð uppalanda sínum og sé hvergi nærri sjálfbjarga er það þó mun þroskaðra til að takast á við umhverfið en þriggja mánaða gamalt barn. Jafnframt er móðurinni gefið tækifæri til að ná sér eftir áreynslu barnsburðarms og aðlagast þeirri gerbreytingu sem hann veldur á högum hennar. Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í ljós hve mikilvægt það er fyrir velferð og þroska barns að náið og traust samband myndist milli þess og móður þess eða nánasta uppalanda þegar á fyrsta æviskeiði. Gildi móðurmjólkur fyrir ungabörn er ótvírætt, bæði til næringar og verndar gegn sýkingum. Þó að allt sé betra en ekkert í þeim efnum hefur löngum verið miðað við a.m.k. sex mánuði sem æskilegan lágmarkstíma brjóstagjafar, en eftir þann tíma fer ónæmiskerfi barnsins að geta annað eigin vörnum. Jafnframt er brjóstagjöf mjög virk til að mynda sterk tilfinningatengsl milli móður og barns.

Heilsa og heilbrigði barns fyrstu mánuði lífsins byggist framar öðru á móður þess, heilsu hennar, næringarástandi og félagslegum aðstæðum hennar. Heilsusamlegt gildi móðurmjólkur fyrir ungabörn er ótvírætt og benda allar rannsóknir til þess að geti barn notið móðurmjólkurinnar fyrstu ævimánuðina verði það ekki einungis hraustara fyrsta aldursárið, heldur eflist einnig mótstaða þess og ónæmi gegn ýmsum sjúkdómum síðar á lífsleiðinni. Efnasamsetning brjóstamjólkur stuðlar að hæfilegum og eðlilegum vexti barns, sér því fyrir vítamínum og steinefnum í nákvæmlega því magni sem það getur nýtt sér og þarf á að halda. Mótefni hennar veita vörn gegn sjúkdómum og draga úr hættu á ofnæmi hvers konar. Í bréfi sem dr. Helgi Valdimarsson prófessor í ofnæmisfræði við Háskóla Íslands sendi heilbrigðisyfirvöldum nýlega vegna rannsókna í ofnæmisfræðum, segir svo, með leyfi forseta:

„Enginn vafi er á því að ofnæmi er veigamesta orsök langvarandi vanheilsu meðal ungbarna hérlendis. Auk astma, exems og meltingartruflana getur ofnæmi einnig oft verið afgerandi meðvirkur orsakaþáttur í endurteknum og þrálátum eyrnabólgum og sýkingum í öndunarfærum. Einnig benda nýlegar rannsóknir til þess að ofnæmi geti orsakað mígreni og jafnvel stuðlað að sjúklegum óróleika, eða „hyperactivity“, og flogaveiki í sumum börnum.“

Í meðfylgjandi bréfi segir Helgi einnig, með leyfi forseta:

„Þótt ekki sé endanlega búið að sanna að neysla á brjóstamjólk einvörðungu fyrstu mánuði ævinnar geti komið í veg fyrir ofnæmissjúkdóma í ungbörnum tel ég að rökin fyrir því séu of sterk til að láta þau sem vind um eyru þjóta. Ávinningurinn getur orðið veruleg heilsubót margra barna sem þjást af ofnæmissjúkdómum og endurteknum sýkingum fyrstu ár ævinnar. Má fullyrða að þessir ungbarnasjúkdómar hafi í för með sér mikinn kostnað fyrir þjóðina.“

Því má bæta við að auk þess að draga úr hættu á ofnæmissjúkdómum hvers konar mun brjóstagjöf einnig draga úr tannskemmdum barna, eyrnabólgum, maga- og þarmasýkingum og einnig minnka hættu á brjóstkrabbameini hjá konum. Brjóstagjöf er því í rauninni frumheilsugæsla. Fyrir utan mannlegan ávinning þess að heilbrigði manna, andlegt sem líkamlegt, sé gott má ljóst vera að þessi heilsugæsla sparar sameiginlegum sjóðum landsmanna ófáar krónurnar sé til lengri tíma litið. Sá kostnaður, sem lenging fæðingarorlofs hefur í för með sér, skilar sér því tvímælalaust aftur í beinhörðum peningum.

En brjóstagjöf verður ekki afgreidd með því einu að fjalla um efnasamsetningu móðurmjólkur eða sparnað í heilbrigðiskerfinu. Hún er flóknara mál en svo. Brjóstagjöf byggist framar öðru á tilfinningatengslum móður og barns. Hafi móðir ekki næði til að sinna barni sínu eftir fæðingu þess er viðbúið að hún missi mjólkina og geti ekki haft barnið á brjósti.

Nú til dags er öllum fæðandi konum tjáð að æskilegt sé að hafa barn á brjósti í a.m.k. sex mánuði og ófáar eru þær konurnar sem gengið hafa fullar af sektarkennd út á vinnumarkaðinn þremur mánuðum eftir fæðingu barns og ekki átt annarra kosta völ. Með fullri vinnu utan heimilis getur kona ekki búist við að geta haft barn sitt á brjósti og tvískinnungur þess samfélags, sem segir henni að hafa barnið á brjósti sex mánuði en sendir hana út á vinnumarkaðinn eftir þrjá mánuði er forkastanlegur.

Hér erum við komin að kjarna þess máls, sem oft og tíðum snýr að konum og börnum af hendi löggjafans. Heimilið og fjölskyldan, börnin og móðurástin, allt er þetta dásamað og í heiðri haft í orði en ekki á borði. Til þess að sinna börnum, ekki bara hvað brjóstagjöf varðar, heldur almennt og rækta þann garð, sem heimilið er, þarf tíma og sá tími er ekki fyrir hendi á flestum heimilum vegna þeirrar vinnuskyldu sem þjóðfélagið leggur mörgum foreldrum á herðar. Þessu verðum við að breyta og það er ábyrgðarhlutur okkar sem hér sitjum á hv. Alþingi að gera það. Lenging fæðingarorlofs er aðeins lítill þáttur slíkra breytinga. Tilgangur þess er að gefa foreldrum tíma til að annast um börn sín á fyrstu og viðkvæmustu mánuðunum á ævi barnanna, að mynda þau tilfinningatengsl sem samskipti foreldra og barna byggja á til frambúðar og gera konum raunverulega kleift að hafa börn sín á brjósti, a.m.k. þá sex mánuði sem hér um ræðir, ef þær sjálfar vilja það. Hvað brjóstagjöfina varðar vil ég taka það skýrt fram að ég er með þessu ekki að segja að konur eigi að hafa börn sín á brjósti í sex mánuði, en ég vil hins vegar að þær geti það ef þær sjálfar vilja. Þess vegna m.a. legg ég til að fæðingarorlof verði lengt sem því nemur.

Til samanburðar má geta þess að í nágrannalöndum okkar er fæðingarorlof víðast hvar lengra en hér á landi. Í Frakklandi er fæðingarorlof 4 mánuðir og 4–5 mánuðir eftir aðstæðum í Noregi og Danmörku. Í Hollandi er fæðingarorlof 6 mánuðir, 9 mánuðir í Svíþjóð og í Finnlandi er það heilt ár, en þar er það lengst. Það er því ljóst að við erum orðnir eftirbátar nágranna okkar á þessu sviði.

Í annan stað er gert ráð fyrir því í frv. að fæðingarorlofsgreiðslur miðist við full laun foreldris þannig að foreldri verði ekki fyrir fjárhagslegu tapi vegna fæðingarorlofs.

Í fyrsta lagi er með þessu verið að viðurkenna að störf þau, er lúta að umönnun og uppeldi barna, eru engu síður mikilvæg en störf á hinum almenna vinnumarkaði og að foreldrahlutverkið er a.m.k. jafnmikils virði og fyrirvinnuhlutverkið í krónum talið. Að ekkert starf, sem foreldri þiggur laun fyrir, skuli virða meira og launa hærra en það starf að annast um nýfætt barn. Þetta er spurning um grundvallargildismat á umönnunar- og uppeldisstörfum.

Í öðru lagi er hér um beint fjárhagsatriði að ræða fyrir konur sem eru úti á vinnumarkaðinum og lækka mundu í launum við töku fæðingarorlofs. Konur eru fyrirvinnur rétt eins og karlar og við núverandi fjárhagsaðstæður margra heimila í landinu, svo að ekki sé minnst á fjárhag einstæðra mæðra, munu fá heimili geta borið launaskerðingar af einu eða öðru tagi. Kvennalistinn mun fyrir sitt leyti a.m.k. aldrei standa fyrir því að skerða laun kvenna. Síst af öllu refsa þeim með launaskerðingu fyrir að eiga börn. Barátta fyrir bættum kjörum kvenna snýst ekki um að lækka þær konur í launum, sem eru svo ljónheppnar að geta e.t.v. lifað af þeim, heldur snýst hún um að hækka þau skammarlega lágu laun sem flestar konur búa nú við og fá því til leiðar komið að allar konur fái mannsæmandi laun fyrir vinnu sína. Það er nokkuð sem mundi skila sér inn í fæðingarorlofsgreiðslur með þessu fyrirkomulagi.

Fæðingarorlofsgreiðslur, sem miða við afkomutryggingu heimilanna, eins og hér er lagt til, eru einnig mikilvægur þáttur þess að feður, sem flestir afla stærri hluta heimilistekna vegna kynbundins launamisréttis á vinnumarkaðinum, geti nýtt sér réttindi til fæðingarorlofs og borið aukna ábyrgð á umönnun barna sinna. Eins og nú standa sakir nýta feður sér lítið núgildandi heimild til fæðingarorlofs. Á síðasta ári munu þeir aðeins hafa verið rúm 4% fæðingarorlofsþega. Í Svíþjóð t.d., þar sem foreldrar fá 90% launa sinna greidd í fæðingarorlof, voru feður hins vegar um þriðjungur fæðingarorlofsþega á síðasta ári og vegur afkomutrygging þar greinilega þungt. Í nágrannalöndum okkar er ekki óalgengt að fæðingarorlofsgreiðslur séu miðaðar við 70–90% af launum foreldra, nema í Frakklandi og Hollandi þar sem foreldrar fá greidd full laun í fæðingarorlofsgreiðslur á þessum grundvelli milli landa, því að vitaskuld eru laun og launakjör misjöfn eftir löndum. Hvað varðar aðstæður hér á landi, þá vitum við að nú er svo komið fjárhag fjölmargra heimila að þau geta ekki séð á eftir einni einustu krónu af tekjum sínum. Það er ein af ástæðum þess að lagt er til að fæðingarorlofsgreiðslur miðist við full laun foreldris, en ekki eitthvert prósentuhlutfall þeirra eða einhverja fasta upphæð.

Í þriðja lagi er í frv. gert ráð fyrir að allar konur fái a.m.k. óskert lágmarksfæðingarorlof án tillits til atvinnuþátttöku. Þar með er afnumið það óréttlæti gagnvart heimavinnandi konum, sem viðgengst samkvæmt gildandi lögum, og í verki viðurkennd réttarstaða heimavinnandi móður og gildi starfa hennar fyrir þjóðfélagið í heild, þótt í litlu sé. Heimavinnandi konur sinna störfum sínum alla jafnan án þess að fyrir komi nokkur greiðsla af hálfu þjóðfélagsins. Ég tel það vera lágmarksviðurkenningu á störfum þeirra að þær njóti a.m.k. fullra lágmarksgreiðslna fæðingarorlofs. Það skal tekið fram að með þessu er ekki verið að leggja neitt endanlegt mat á störf þeirra sem heimavinnandi eru. Slíkt mat er ekki til og verður ekki hrist fram úr erminni. Hér er aðeins um að ræða að þær konur sem ekki búa við neitt starfsmat og þær konur sem í hlutastörfum eru úti á vinnumarkaðinum fái a.m.k. þær 18 087 kr., sem fæðingarorlofsgreiðslan er nú á mánuði, óskertar. Hefur ýmsum fundist hér heldur ríflega skammtað þar sem um er að ræða tekjuaukningu hjá þeim konum sem í hlut eiga. Þær standa ekki í stað tekjulega eins og þær sem útivinnandi eru. Ég vil þá á móti benda á að heimavinnandi konur og konur í hlutastarfi búa oft engu síður við fjárhagslegt óöryggi en þær konur sem hafa fulla launaða vinnu, stundum jafnvel öllu meira, og því er brýnt að það öryggi, sem full greiðsla fæðingarorlofs veitir, nái einnig til þeirra heimavinnandi. Um leið er viðurkennt að þær eru vinnandi konur og eigi rétt á einhvers konar launum fyrir störf sín þótt langur vegur sé í að þau verði að fullu metin til fjár.

Í fjórða lagi er gert ráð fyrir að breytingar á lágmarksfæðingarorlofi miðist við 9. flokks taxta Verkamannasambands Íslands í stað 8. flokks samkvæmt núgildandi lögum. En í kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins haustið 1982 var svo um samið að allir launamenn skyldu hækka um einn flokk 1. jan. 1983, þannig að þeir sem tóku laun skv. 8. flokki þegar lögin voru sett taka nú laun skv. 9. flokki. Hér er því aðeins um eðlilega lagfæringu laganna að ræða.

Í fimmta lagi er í frv. gert ráð fyrir að faðir eigi þess kost að taka fæðingarorlof í tvo mánuði með samþykki móður í stað þess eina mánaðar sem núgildandi lög kveða á um. Skerðist þá fæðingarorlof móður sem því nemur. Það er ekki síður mikilvægt að faðir hafi tök á að tengjast barni sínu sem nánast og sem fyrst og að foreldrum gefist tækifæri til að leggja grunninn saman að jafnri ábyrgð á börnum sínum. En til þess er sá eini mánuður, sem feður eiga rétt á skv. gildandi lögum, mjög naumur. Ekki er gert að skilyrði að um sé að ræða tvo síðustu mánuði fæðingarorlofs, heldur ráða foreldrar tilhögun orlofstökunnar sjálf án afskipta löggjafans. Sveigjanleiki í tímaákvörðunum er æskilegur að þessu leyti, vegna breytilegra aðstæðna fjölskyldna. Því getur faðir tekið orlof sitt hvenær sem er á þessum sex mánuðum svo fremi móðir sé því samþykk. Ákvæðið um samþykki móður er óbreytt frá núgildandi lögum og tekur sem fyrr mið af því að það er móðirin sem þarf að ná sér heilsufarslega eftir áreynslu barnsburðarins.

Í sjötta lagi er gert ráð fyrir að fæðingarorlof lengist um tvo mánuði sé um tvíburafæðingu að ræða og um allt að fjóra mánuði eignist kona fleiri en tvö börn. Slíkar fæðingar eru ákaflega fáar hér á landi þannig að ekki er um neinn umtalsverðan kostnað að ræða af þessum sökum. Hins vegar er ljóst að fjölburaforeldrar þurfa lengri tíma til að aðlagast breyttum aðstæðum en einburaforeldrar og barnaumönnun er umfangsmeiri eftir því sem börnin eru fleiri.

Í sjöunda lagi er gert ráð fyrir að fæðingarorlof verði aldrei skemmra en þrír mánuðir ef móðir lætur barn frá sér vegna ættleiðingar, uppeldis eða fósturs eða til varanlegrar dvalar á stofnun. Sama gildir ef um er að ræða fósturlát, er jafna má til fæðingar, þar sem gera má ráð fyrir að sérhver kona þurfi a.m.k. þrjá mánuði til að jafna sig andlega og líkamlega eftir áreynslu barnsburðarins. Jafnframt er fellt niður ákvæði, er varðar fæðingu andvana barns, þar sem rétt þykir að kona sem fæðir andvana barn njóti sama réttar og kona sem missir barn sitt skömmu eftir fæðingu. Gert er ráð fyrir að kjörforeldrar, uppeldis- eða fósturforeldrar eigi sama rétt á fæðingarorlofi og aðrir foreldrar. Eðlilegt hlýtur að teljast að kjörforeldrar, uppeldis- eða fósturforeldrar njóti sama réttar og aðrir foreldrar í þessu sambandi, þar sem tíma þarf til að aðlagast breyttum aðstæðum bæði fyrir foreldra og barnið.

Þá er komið að kostnaðarhlið þessa máls. Þegar þetta frv. var flutt á síðasta þingi var gerð ítarleg grein fyrir kostnaði vegna þess. Skv. upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins í október s.l. höfðu þær kostnaðaráætlanir allar staðist, miðað við þróun fæðingarorlofsgreiðslna á þessu ári. Ég mun fara yfir þessa kostnaðaráætlun að hluta til, en þess ber að geta að efnahagstorsendur nú eru aðrar en þegar áætlunin var gerð þar sem kjarasamningar hafa verið gerðir í millitíðinni. Til að færa kostnaðartölurnar til réttara horfs hef ég einfaldlega hækkað þær um 25% þar sem við á, en bið hv. þdm. um að gæta þess að af þeim sökum eru þessir útreikningar lauslegri en ella.

Skv. upplýsingum Tryggingastofnunar ríkisins munu á síðasta ári hafa verið greiddar út 121 millj. 743 þús. kr. í fæðingarorlof til 4258 fæðandi kvenna. Þessar greiðslur skiptast þannig að fullt fæðingarorlof fengu 2718 konur, 2/3 hluta fæðingarorlofs fengu 778 konur og 1/3 hluta fæðingarorlofs fengu 762 konur. Ef allar konurnar hefðu fengið fullt fæðingarorlof eins og frv. kveður á um, hefðu fæðingarorlofsgreiðslur hækkað um 21.7% og heildarupphæð þeirra orðið 148 millj. miðað við síðasta ár. Þarna hefðu bæst við 26 millj. kr. en skv. núgildandi forsendum sennilega um 32.5 millj. kr. Ef miðað er við lágmarksfæðingarorlofsgreiðslur til allra kvenna, sex mánaða fæðingarorlof og að konur haldi launum sínum í fæðingarorlofi óskertum, var áætlaður heildarkostnaður vegna frv. 284.5 millj. kr. En með 25% hækkun nú yrði hann um 355 millj. kr.

Ég sé ekki ástæðu til að fara nánar út í það hér hvernig þessar tölur voru fundnar. Menn geta lesið um það í Alþingistíðindum frá í fyrra. Ég vil aðeins geta þess að kostnaðurinn við að framfylgja núgildandi lögum hækkar hlutfallslega mjög svipað og kostnaðurinn við að framfylgja þessu frv. eða úr 137 millj. kr. á þessu ári í um það bil 172 millj. kr. Niðurstöðukostnaðartalan vegna frv. er í kringum 350 millj. kr. og er það sú tala sem mestu máli skiptir. Ekki er ólíklegt að einhverjum finnist að hér sé um töluverða fjárhæð að ræða. Mikið eða lítið er háð mati hverju sinni og við hvað menn miða þegar þeir segja að eitthvað sé lítið eða mikið. Hér er um að ræða mikið fé, sé miðað við það sem við veitum þegar til þessara mála, lítið fé sé miðað við upphæðir til ýmissa annarra mála. Spurningin snýst eins og fyrri daginn um hvaða málum við viljum veita forgang. Aðstæður ungbarnaforeldra í dag krefjast þess að þessu máli sé sinnt þannig að að gagni megi koma.

Ég hef bent á að hér er um sparnaðarmál að ræða sé til lengri tíma litið. Ríkissjóður mun örugglega spara sér margar krónurnar á sviði félags- og heilbrigðismála við lengingu fæðingarorlofs. Hér er verið að leggja til að við fjárfestum í framtíðinni, veitum auknu fé til aðbúnaðar barna okkar og einnig að við sýnum að við metum nokkurs þann mannlega ávinning sem því fylgir.

Til þess að ekki þurfi að treysta alfarið á ríkissjóð til að standa straum af kostnaði vegna þessa frv. hef ég lagt fram fylgifrv. með þessu frv. til að afla tekna vegna lengingar fæðingarorlofs. Það frv. er að finna á þskj. 152 og mun ég gera grein fyrir því á eftir. Það er ekki að ástæðulausu sem ég kýs að hafa þann hátt á að afla þessu máli fjár sérstaklega. Meðferð þessa máls á síðasta þingi bendir tvímælalaust til að fjárhagshlið málsins hafi verið sá þáttur þess sem einkum stóð því fyrir þrifum.

Eins og segir í grg. var frv. sem var í megindráttum samhljóða þessu frv., vísað til heilbr.- og trn. þessarar hv. deildar að lokinni 1. umr. 8. febr. s.l., en fékkst ekki afgreitt úr n. til 2. umr. og atkvgr. fyrir þinglausnir 22. maí í vor þrátt fyrir ítrekaðar óskir mínar þar um.

Umsagnir meðmæltar frv. bárust m.a. frá Alþýðusambandi Íslands, Samtökum kvenna á vinnumarkaðinum, Stéttarsambandi bænda og Kvenfélagasambandi Íslands. Jafnframt beindi Félag einstæðra foreldra þeirri áskorun til Alþingis að veita þessu frv. framgang. Þess ber að geta að undanfarið hafa konur víða um land staðið fyrir undirskriftasöfnun þessu frv. til stuðnings. Höfðu rúmlega 3700 undirskriftir borist í okt., en fjöldi undirskrifta hefur borist síðan og hef ég ekki lengur tölu á þeim. Munu undirskriftalistarnir verða afhentir formanni þeirrar hv. nefndar sem mál þetta fær til umfjöllunar þegar þar að kemur.

Eins og ljóst má vera af þessum viðbrögðum er mál þetta mikið réttlætismál fyrir alla foreldra hér á landi. Jafnframt er ljóst að eigi konur að hafa eitthvert val um hvernig lífi þeirra og störfum er háttað er nauðsynlegt að samhæfa hin mismunandi og félagslega nauðsynlegu hlutverk kvenna. Í þessu frv. er leitast við að samhæfa þátttöku og mikilvægi kvenna í atvinnulífinu annars vegar og hið mikilvæga móðurhlutverk hins vegar. Jafnframt er verið að treysta innbyrðis tengsl fjölskyldunnar og styrkja hana á þýðingarmiklu og viðkvæmu skeiði, tryggja velferð barna á fyrstu æviárum þeirra og gefa feðrum kost á að taka aukinn þátt í umönnum barna sinna. Að síðustu er verið að viðurkenna þjóðfélagslegt gildi móðurhlutverksins og þeirra starfa sem því fylgja þar sem hér er lagt til að allar fæðandi konur njóti sama réttar án tillits til atvinnuþátttöku.

Virðulegi forseti. Þörfum ungbarna og ungbarnaforeldra verður ekki breytt. Ef ekki er rúm fyrir þau í þjóðfélagi nútímans verðum við að breyta þjóðfélaginu til að svo megi verða. Eins og ég gat um fyrr í máli mínu er konum sagt að hafa börn sín á brjósti í sex mánuði, en þeim er í rauninni ekki gert kleift að gera það. Konum er sagt að það skipti miklu að búa vel að börnum sínum. Það þarf ekki að segja þeim það, þær vita það. En þeim er sniðinn þröngur stakkur í þeim efnum. Alls staðar er skorið við nögl í fæðingarorlofsmálum, í dagvistarmálum, í mati á heimilis- og uppeldisstörfum og í launum kvenna úti á vinnumarkaðinum. Eftir sitja konurnar áhyggjufullar um börn sín og sakbitnar, því margar halda að þetta sé allt þeim að kenna, en ekki þeim stjórnvöldum sem eru áhrifavaldar í því að skapa þeim þessar aðstæður, stjórnvöldum sem einum of oft setja þær og börnin aftast í forgangsröðina þegar verið er að skipta þjóðarkökunni. Þessu verður að breyta og á þessu verður að taka með lagasetningu sem gerir eitthvert gagn og hefur áhrif til bóta. Lög um fæðingarorlof eru ein slík lög og því er þetta frv. borið hér fram.

Að lokinni þessari umr. óska ég að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.