23.05.1985
Neðri deild: 75. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5633 í B-deild Alþingistíðinda. (4894)

486. mál, virkjun Fljótaár

(Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 897 flyt ég frv. til l. um breyt. á lögum nr. 98 frá 3. maí 1935, um virkjun Fljótaár í Fljótum norður.

Með frv. þessu er að því stefnt að gera Rafveitu Siglufjarðar, sem rekur Skeiðsfossvirkjun í Fljótum, jafnsetta að því er varðar greiðslu opinberra gjalda öðrum orkufyrirtækjum, sbr. 16. gr. laga nr. 42 1983, um Landsvirkjun, 13. gr. laga nr. 66 1976, um Orkubú Vestfjarða, 14. gr. laga nr. 100 frá 1974, um Hitaveitu Suðurnesja, og 4. gr. laga nr. 26 1977, um virkjun Hvítár í Borgarfirði, Andakílsárvirkjun. Þá er í 4. gr. laga nr. 60 frá 1981, um raforkuver, sambærilegt ákvæði um skattafríðindi orkuvera sem reist verða skv. þeim lögum.

Geta ber þess að Rafmagnsveitur ríkisins njóta enn víðtækari fríðinda í þessu efni en nefndar orkuveitur, þar sem Rafmagnsveitur ríkisins eru einnig undanþegnar opinberum gjöldum af húseignum sínum, sbr. 77. gr. orkulaga nr. 58 frá 1967, og orkar það að sjálfsögðu tvímælis að hafa ekki ein lög yfir alla. Telja verður sanngirnis- og réttlætismál að Skeiðsfossvirkjun verði skattlögð með sama hætti og önnur orkufyrirtæki í landinu.

Frv. þetta er flutt að tilmælum Siglufjarðarkaupstaðar sem er eigandi virkjunarinnar.

Rn. hefur leitað umsagna nokkurra þeirra aðila er málið varðar, m. a. þeirra er verða munu fyrir tekjumissi skv. frv., þ. e. fjmrn. vegna ríkissjóðs, sýslumannsins í Skagafjarðarsýslu vegna sýsluvegasjóðs og hreppsnefndar Holtshrepps vegna sveitarsjóðs Holtshrepps. Umsagnir ofangreindra aðila eru fskj. með frv. þessu.

Eins og fram kemur í fskj. með frv. eru fjmrn. og sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu meðmælt efni frv. Hreppsnefnd Holtshrepps er hins vegar að hluta til andvíg efni frv. Hreppsnefndin óskar að fram komi skylda Rafveitu Siglufjarðar til að greiða fasteignaskatta af öllum húseignum, þar með töldu rafstöðvarhúsi. Orðalagið sem lagt er til í frv. er, eins og fyrr greinir, samhljóða 16. gr. laga um Landsvirkjun, um skattskyldu þess fyrirtækis. Umrædd 16. gr. hefur verið skilin á þann veg að stöðvarhúsin eru talin til húseigna og því skattskyld. Skv. því ætti orðalag frv. að koma til móts við sjónarmið hreppsnefndar Holtshrepps.

Herra forseti. Þegar þessari 1. umr. lýkur legg ég til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og iðnn.