03.12.1984
Efri deild: 22. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (965)

186. mál, frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri

Fjmrh. (Albert Guðmundsson). Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 9 frá 30. mars 1984, um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar manna í atvinnurekstri. Í því frv., sem ég mæli hér fyrir, er lagt til að hámarksfrádráttur á skattskyldum tekjum manna vegna framlaga þeirra til atvinnurekstrar skv. lögum nr. 9/1984 um það efni, hækki úr 20 þús. kr. í 25 þús. kr. hjá einstaklingum, úr 40 þús. kr. í 50 þús. kr. hjá hjónum. Hér er í raun ekki um neina efnisbreytingu að ræða.

Samkvæmt 25. gr. laga nr. 9/1984 skulu fjárhæðir sem um getur í 2. gr. laganna breytast í samræmi við skattvísitölu ár hvert. Eins og kunnugt er er ekki gert ráð fyrir ákvörðun um skattvísitölu í fjárlögum fyrir næsta ár. Af þessum sökum er nauðsynlegt að fjárhæðum þessum verði breytt með sérstökum lögum. Að mati Þjóðhagsstofnunar nam tekjubreyting á milli áranna 1983 og 1984 sem næst 25%. Á grundvelli þessa er lagt til að umræddur hámarksfrádráttur hækki sem tekjubreytingu nemur, eða um 25%. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að sama hækkun er lögð til varðandi frádráttarheimildir í 30. gr. laga um tekju- og eignarskatt, en frv. þar að lútandi liggur nú fyrir Alþingi.

Með vísun til þessa þykir mér ekki þörf á að ræða frv. þetta nánar að svo stöddu og legg því til að því verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.