11.02.1986
Sameinað þing: 45. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2478 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)

187. mál, frysting kjarnorkuvopna

Flm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Í trausti þess að á okkur hafi verið hlustað, eins og hæstv. utanrrh. orðaði það, tel ég fulla ástæðu til að álykta áfram í fullu samræmi og í rökréttu framhaldi af ályktun Alþingis frá 23. maí í fyrra um þetta efni. Ég tel að einmitt hafi ræða hæstv. utanrrh. verið rökstuðningur fyrir því.

Umr. (atkvgr.) frestað.