17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3157 í B-deild Alþingistíðinda. (2741)

292. mál, fjármögnun rannsókna á hvalastofninum

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins út af ummælum hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur um Alþjóðahvalveiðiráðið segja að það mun ekki gliðna í sundur fyrir tilstuðlan Íslendinga sem voru stofnendur að því ráði. Ég veit að þm. mundi sannfærast um það ef hún sæti einn fund þessa ráðs. Ég hef þegar setið tvo fundi og er alveg ljóst að það eru ýmis önnur ríki sem mundu frekar verða til þess að þetta ráð gliðni í sundur. Ég vænti að til þess muni ekki koma, en það er vissulega hætta á því.