03.04.1986
Efri deild: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3431 í B-deild Alþingistíðinda. (3082)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Forseti (Stefán Benediktsson):

Það er rétt, sem hv. 4. þm. Vesturl. sagði í ræðustól, að þingflokkur Sjálfstfl. hafði óskað eftir því að umræðu um mál þetta yrði frestað. Að viðhöfðu samráði við þingflokksformenn stjórnarflokkanna hef ég fallist á að þm. fái að mæla fyrir nál. sínum, en ég sé ekki fram á að umræðum ljúki á þessum degi og því verði ekki hjá því komist að hluta þessa umræðu sundur, hvort sem það gerist núna eða síðar.