23.04.1986
Efri deild: 92. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4576 í B-deild Alþingistíðinda. (4389)

448. mál, málefni Arnarflugs hf.

Ragnar Arnalds:

Hér er verið að taka áhættu með 100 millj. kr. af fé skattborgara þessa lands án þess að nokkur trygging verði fyrirliggjandi næstu tvö árin vegna þessarar ábyrgðar. Við sem skipum minni hl. í þessu máli höfum lagt til að ríkisstj. fengi málið til meðferðar, tæki það til endurskoðunar og reyndi að finna einhvern annan og skynsamlegri grundvöll fyrir þessu máli. Því hefur verið hafnað og því segi ég nei.