23.04.1986
Sameinað þing: 81. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4611 í B-deild Alþingistíðinda. (4441)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 108. löggjafarþing, lýkur störfum í dag, miðvikudaginn 23. apríl 1986.

Mun ég því slíta Alþingi í dag.

Gjört í Reykjavík 23. apríl 1986.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Óska ég þingmönnum velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Steingrímur Hermannsson, mælti:

„Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.

1