17.12.1986
Neðri deild: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (1734)

158. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég bendi á hér úr forsetastóli að þetta er 2. umr. málsins og það verða umræður um þetta mál að sjálfsögðu þegar til 3. umr. kemur og ég tel ákaflega óheppilegt að þm. séu að stofna til umræðna af þessu tagi þegar verið er að greiða atkvæði. Eigi að síður ætla ég að veita hv. 3. þm. Reykv. tækifæri til að segja örfá orð um þingsköp.