19.01.1987
Efri deild: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2313 í B-deild Alþingistíðinda. (2225)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Þar sem þetta er fyrsti fundur á nýju ári vil ég bjóða hv. þingdeildarmenn velkomna til starfa og óska þeim og starfsliði Alþingis alls velfarnaðar á nýbyrjuðu ári.