15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (1564)

1. mál, fjárlög 1988

Júlíus Sólnes:

Hæstv. forseti. Ég hef alla tíð talið það mjög óheppilegt að raforka til rafhitunar sé niðurgreidd með þeim hætti sem hingað til hefur tíðkast, þ.e. það komi beint fram í lækkuðu raforkuverði. Raforka á að vera á því verði sem hún kostar. Hins vegar er sjálfsagt að greiða niður rafhitun með beinum styrkjum eða öðrum hætti. Ég greiði því ekki atkvæði.