15.12.1987
Neðri deild: 25. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)

186. mál, fréttaflutningur Ríkisútvarpsins um utanríkismál

Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Hér er um samkomulagsmál að ræða, tæknilegs eðlis. Fjh.- og viðskn. deildarinnar hefur athugað frv. á fundum sínum eins og fram kemur á þskj. 280 og leggur til að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 200. Undir þetta rita allir nefndarmenn, Steingrímur J. Sigfússon þó með fyrirvara.