20.10.1987
Sameinað þing: 6. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í B-deild Alþingistíðinda. (174)

10. mál, umhverfisfræðsla

Forseti (Guðrún Helgadóttir):

Að gefnu tilefni upplýsi ég það sem segir í þingsköpum um hvert málum skuli vísa. Í 15. gr. þingskapa segir: „Til félagsmálanefndar skal vísa þeim málum sem félagsmála-, heilbrigðis- og trygginga- og menntamálanefndir í deildum mundu fjalla um ef borin væru fram í frumvarpsformi.“ Ég tel því með öllu eðlilegt að þessu máli sé vísað til hv. félmn. Sþ.