28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3210 í B-deild Alþingistíðinda. (2285)

1. mál, fjárlög 1988

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég vísa að öllu leyti til þess sem kom hér fram hjá hv. 7. þm. Reykv., en áður en ég geri grein fyrir atkvæði mínu vil ég fagna því sérstaklega, ef það er rétt, ef ég hef ekki tekið skakkt eftir, að hæstv. fjmrh. greiddi atkvæði með. Hann sagði já. Ég segi það líka. Ég segi já.