05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3589 í B-deild Alþingistíðinda. (2534)

196. mál, söluskattur

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Þar sem þær fréttir komu mér sem nefndarmanni í fjh.- og viðskn. nokkuð á óvart að nefndin hefði komið saman til að ræða efni þessarar brtt. og meiri hl. nefndarinnar hefði komist að þeirri niðurstöðu að brtt. væri óþörf fer ég fram á að hv. formaður fjh.- og viðskn., 1. þm. Norðurl. v., geri þingdeildinni grein fyrir því hvernig störfum fjh.- og viðskn. í þessu efni var háttað.