25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4849 í B-deild Alþingistíðinda. (3341)

234. mál, söluskattur af heilsurækt

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég vil taka undir málflutning fyrirspyrjanda og leggja mikla áherslu á það að miðað við þær upplýsingar sem komið hafa um starfsemi sem þá sem hann gerði hér að umræðuefni, þá þarf að endurskoða þessar nýju söluskattsreglur. Það er alveg tvímælalaust meira rugl í þeirri innheimtu núna en nokkurn tímann hefur verið áður.