20.04.1988
Neðri deild: 79. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6679 í B-deild Alþingistíðinda. (4644)

271. mál, framhaldsskólar

Albert Guðmundsson:

Virðulegur forseti. Þó að ég eigi bágt með að trúa þeim hryggilegu fréttum eða hörmulegu fréttum, sem koma fram í málflutningi hv. síðasta ræðumanns, að húsmæður séu ekki lengur til staðar á heimilunum til að gefa börnunum mat (ÞÞ: Í hádeginu.) í hádeginu, ef svo er að það sé rétt, segi ég já.