27.04.1988
Neðri deild: 82. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6881 í B-deild Alþingistíðinda. (4820)

256. mál, almannatryggingar

Frsm. heilbr.- og trn. (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um þetta mál. Í ljósi þess að nú stendur yfir á vegum ríkisstjórnarinnar heildarendurskoðun á lögum um almannatryggingar leggur nefndin til að máli þessu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Undir álitið rita auk mín Ragnhildur Helgadóttir, formaður nefndarinnar, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Birgir Dýrfjörð og Jón Kristjánsson.

Fjarverandi afgreiðslu málsins voru hv. þm. Guðrún Helgadóttir og Guðmundur G. Þórarinsson.