07.05.1988
Sameinað þing: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7723 í B-deild Alþingistíðinda. (5806)

467. mál, vegáætlun 1987--1990

Júlíus Sólnes:

Hæstv. forseti. Ég sat þennan fund þar sem rætt var um það að ef með þyrfti yrðu þingfundir á laugardegi milli kl. 1 og 3. Það var á þeim fundi talað um að ekki væri víst að það þyrfti að hafa neinn þingfund á laugardegi. En ef slíkur þingfundur skyldi haldinn lyki honum kl. 3 vegna þess að þingflokkur Alþb. er upptekinn. Haldinn er miðstjórnarfundur Alþb. og er hann reyndar hafinn. Ég tjáði hv. 6. þm. Norðurl. e. þessa niðurstöðu og fullvissaði hann um að hann gæti ráðstafað sínum tíma eftir kl. 3 þennan dag.