11.05.1988
Sameinað þing: 85. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7976 í B-deild Alþingistíðinda. (6188)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 110. löggjafarþing, lýkur störfum í dag, miðvikudaginn 11. maí 1988. Mun ég því slíta Alþingi í dag.

Gjört í Reykjavík, 11. maí 1988.

Vigdís Finnbogadóttir.

Þorsteinn Pálsson.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Óska ég þingmönnum velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Þorsteinn Pálsson, mælti:

„Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“

Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.