Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.
Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):
Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um að sala Símans væri liður í að tryggja hagsmuni almennings og tryggja samkeppni. Ég vildi spyrja hæstv. fjármálaráðherra út í samkeppnina sem á að tryggja. Ég hefði talið vænlegra, til að tryggja samkeppni, að fara ekki þá leið sem stjórnarflokkarnir hafa markað, að selja Símann í einum pakka. Ég tel mun vænlegra að undanskilja grunnnetið. Með því að undanskilja grunnnetið þá tryggjum við samkeppnina. Við höfum fordæmi frá breytingum á öðrum sviðum.
Við samþykktum síðasta vor breytingar á raforkulögum. Þar var stofnað sérstakt fyrirtæki um flutningsnetið. Þar er ekki samkeppni heldur er einokunarrekstur. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort það væri ekki rétt að fara svipaða leið varðandi fjarskiptakerfið og raforkukerfið, burt séð frá því hvort flutningskerfið verði í einkaeign eða ekki, þ.e. grunnnet Símans. Er ekki aðalatriðið að skilja á milli samkeppnissviðs og síðan einokunaraðstöðu?