Forræði yfir rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.
Þuríður Backman (Vg):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir hefur gert grein fyrir þeirri tillögu til þingsályktunar sem hér liggur frammi á þskj. 16, um að forræði rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma flytjist frá iðnaðarráðherra til umhverfisráðherra og að flokkun vatnsfalla og jarðhitasvæða samkvæmt henni verði lögð fyrir Alþingi til nánari ákvörðunar um verndun og nýtingu þeirra, eins og segir í þingsályktunartillögunni.
Virðulegi forseti. Staðan í dag er sú að fyrsta áfanga rammaáætlunar er lokið en fyrsti áfanginn hefur í raun enga stjórnsýslulega stöðu. Þetta er vinnuplagg sem hæstv. iðnaðarráðherra hefur umsjón með, sem er í hrópandi mótsögn við það sem maður hefði talið að ætti að vera samkvæmt samþykkt sem ríkisstjórnin gerði 1997, að móta framkvæmdaáætlun um umhverfismál en fela iðnaðarráðherra forræðið yfir áætluninni „Sjálfbær þróun í íslensku samfélagi — framkvæmdaáætlun til aldamóta“.
Ég held að það hafi ekki verið að óathuguðu máli að fela iðnaðarráðherra ábyrgð á framkvæmdaáætluninni. Samkvæmt hugmyndafræði núverandi ríkisstjórnar er það stóriðjustefnan sem ræður framkvæmdum og möguleikum á framkvæmdum bæði hvað varðar virkjanir og stóriðju hér á landi. Slíkar framkvæmdir hafa gengið fyrir umhverfisvernd og sjálfbærri þróun. Til marks um þetta má horfa til Kárahnjúkavirkjunar sem nú er verið að reisa. Hún kom sannarlega mjög sterkt inn í þessa rammaáætlun sem svæði sem ætti að vernda. Hins vegar var ráðist í virkjun sem er algerlega andsnúin hugmyndafræðinni um sjálfbæra þróun og getur aldrei og mun aldrei geta staðið undir því að teljast sjálfbær framkvæmd.
Í ljósi þessa er ekki skrýtið, þótt það hafi kannski ekki verið þaulhugsað eða úthugsað en það lá í hlutarins eðli, að iðnaðarráðherra hefði málið á sinni könnu, til að geta farið með þessa rammaáætlun eins og hentar stefnu ríkisstjórnarinnar í stóriðjumálum. Til marks um þær hugmyndir sem nú eru uppi til að styrkja byggð og búsetu í landinu má nefna að hæstv. iðnaðarráðherra fer um sveitir og lofar stóriðju í næstum hvern fjörð. Til þess þarf vatnsafl. En það er ekki byrjað á því, þegar slíkar hugmyndir eru kynntar fyrir sveitarstjórnarmönnum, að fara yfir málið á forsendum sjálfbærrar þróunar, á þeim forsendum að meta vatnsöflin og hvaða kostir komi til greina til þess að uppfylla raforkuþörf verðandi stóriðju. Nei, það er byrjað á að staðsetja stóriðjuna og síðan kemur hitt í framhaldinu.
Við ættum auðvitað að líta til Norðmanna og fara að þeirra dæmi, nota rammaáætlunina til þess sem hún er ætluð. Síðan væri hægt að fara í rannsóknir og virkjanir á þeim svæðum sem þessi vinna segir til um að þjóðin sé sátt við. Þessi vinna er rétt hafin, er rétt farin í gang og langt frá því að vera tilbúin þannig að taka megi einhverjar ákvarðanir um áframhaldandi stóriðju sem stendur. Samt vinna menn hörðum höndum að því að halda áfram stóriðjuuppbyggingunni hér á landi.
Ábyrgðin á rammaáætluninni ætti að liggja hjá umhverfisráðherra og verndun náttúrunnar, verndun umhverfisins, ætti að sitja í fyrirrúmi með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Auðvitað viljum við öll framþróun þótt við höfum mismunandi framtíðarsýn. Við getum hins vegar notað rammaáætlunina eins og Norðmenn, til að stuðla að sjálfbærri þróun eins og a.m.k. titill samþykktar ríkisstjórnarinnar sagði til um.
Ég tek undir það að mikilvægt hafi verið við fyrsta áfangann að svo margir lærðir og leikir skyldu að koma að málinu. Ég tel að framhaldið eigi að vinna á sama hátt þannig að njóta megi vinnu breiðs hóps margra aðila. Þó má segja að það er einn ókostur við vinnuna að áætluninni og að mati á umhverfisáhrifum. Það kemur ekki alveg inn í þessa vinnu en snertir það, þ.e. að við erum fámenn þjóð og stundum er það okkur til trafala að eiga ekki marga sérfræðinga á ákveðnum sviðum. Það getur hugsanlega takmarkað aðkomu þeirra að öðrum málum ef þeir sinna sérfræðistörfum annaðhvort við gerð rammaáætlunar eða mat á umhverfisáhrifum. Ég held að það sé nokkuð sem við þurfum að hafa í huga, að binda ekki svo hendur sérfræðinga okkar að þær geti ekki nýst til annarra hluta.
Virðulegi forseti. Ég tel að þetta sé alveg skýrt. Við teljum að þessi málaflokkur eigi að vera hjá umhverfisráðherra. Þetta er mikilvæg vinna. Við eigum að vinna mjög ákveðið að því að koma á rammaáætlun og fara eftir henni.