131. löggjafarþing — 12. fundur, 20. okt. 2004.
Tilkynning um dagskrá.
[13:31]
Forseti (Birgir Ármannsson):
Um klukkan 3.30 síðdegis fer fram umræða utan dagskrár um kaup Landssímans á Skjá einum. Málshefjandi er hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Hæstv. fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.