131. löggjafarþing — 14. fundur,  21. okt. 2004.

Byggðaáætlun fyrir árin 2002--2005.

216. mál
[15:51]

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er önnur tilraun mín til þess að fá þá tvo sjálfstæðismenn sem hér hafa talað til þess að koma með athugasemd um það sem ég hef nefnt og allir þekkja, vegna þess að þetta er fest í þingskjöl. Bæði hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir og hv. þm. Guðjón Guðmundsson hafa farið eins og köttur í kringum heitan graut að svara því og ég mun ekki reyna frekar að fá svör við spurningunni hjá sjálfstæðismönnum að sinni.