Veggjald í Hvalfjarðargöng.
Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því í þessu andsvari — ég veit ekki hvort það er leyfilegt en ég ætla að láta reyna á það — að lýsa yfir ánægju með þessa þingsályktunartillögu. Ég velti upp þeirri spurningu, með hv. þm. Guðjóni Guðmundssyni, vegna þess að þetta virðist algjörlega borðleggjandi mál: Hvað telur hv. þm. að hafi staðið í veginum fyrir því að stjórnvöld og hæstv. samgönguráðherra hafi fyrir löngu lagst á árar með þeim sem vilja lækka gjaldið og taka virðisaukaskattinn af? Hvað stendur í veginum fyrir því að stjórnvöld hafi ekki fyrir löngu tekið þetta skref, sérstaklega í ljósi þess að það væri mikið framfaraskref fyrir byggðirnar í sunnanverðu kjördæminu?