131. löggjafarþing — 84. fundur,  7. mars 2005.

Varamaður tekur þingsæti.

[15:01]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 8. þm. Reykv. n., Kolbrúnu Halldórsdóttur, dagsett 6. mars:

„Þar sem ég get ekki af persónulegum ástæðum sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að varamaður minn á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykv. n., Atli Gíslason lögmaður, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

 

Atli Gíslason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa.