131. löggjafarþing — 85. fundur, 8. mars 2005.
Vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
495. mál
[14:21]
Guðlaugur Þór Þórðarson (S):
Virðulegi forseti. Hér urðu nokkrar umræður um þessa breytingartillögu og ýmislegt fleira í gær í tengslum við þetta mál og þá kom í ljós að sumir þingmenn höfðu misskilið breytingartillöguna. Þess vegna ætlum við að gefnu tilefni að skoða það á milli umræðna í nefndinni og það er tilkynnt hér með þannig að það fari ekkert á milli mála hvað þarna er á ferðinni.