Varamaður tekur þingsæti.
Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá hv. 10. þm. Reykv. s., Ágústi Ólafi Ágústssyni, dagsett 11. mars 2005:
„Þar sem ég fer í fæðingarorlof frá og með næsta mánudegi, 14. mars, sbr. 12. gr. laga um þingfararkaup og þingfararkostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum, og sæki ekki þingfundi næstu vikur óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykv. s., Einar Karl Haraldsson ráðgjafi, Reykjavík, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Einar Karl Haraldsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.