131. löggjafarþing — 103. fundur,  5. apr. 2005.

Tilkynning.

[13:32]

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Áður en umræða utan dagskrár hefst vill forseti vekja athygli á því að fyrirhuguð er atkvæðagreiðsla að lokinni þeirri umræðu.

Nú hefst umræða utan dagskrár um jafnréttismál í landbúnaði. Málshefjandi er hv. þm. Anna Kristín Gunnarsdóttir. Hæstv. landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.