131. löggjafarþing — 107. fundur,  11. apr. 2005.

Ríkisútvarpið sf.

643. mál
[18:00]

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Hv. þm. Dagný Jónsdóttir talaði um að hún vildi efla Ríkisútvarpið og allt gott um það að segja. En með frumvarpinu er verið að afnema að upplýsingalög og stjórnsýslulög gildi um stofnunina og væri fróðlegt að heyra hvernig sú ráðstöfun eflir Ríkisútvarpið.