131. löggjafarþing — 118. fundur, 26. apr. 2005.
Fjarsala á fjármálaþjónustu.
482. mál
[18:51]
Pétur H. Blöndal (S):
Frú forseti. Frumvarpið sem við ræðum eykur neytendavernd og 1. töluliður breytingartillagnanna við frumvarpið á greinilega líka að auka neytendavernd. Hins vegar felst í honum neikvæð sönnunarbyrði, þ.e. menn þurfa að sanna að þeir séu saklausir. Það rekst á réttarríkið sem við viljum öll hafa og ég segi nei.