131. löggjafarþing — 134. fundur,  11. maí 2005.

Þingfrestun.

[23:21]

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 131. löggjafarþings, frá 11. maí 2005, eða síðar ef nauðsyn krefur, til septemberloka.

Gjört á Bessastöðum, 10. maí 2005.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------------

Halldór Ásgrímsson.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 131. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hæstv. forseta, öðrum hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.