132. löggjafarþing — 8. fundur, 13. okt. 2005.
Tilkynning um dagskrá.
Kl. 1.30, að loknu hádegishléi, fer fram atkvæðagreiðsla um fyrstu dagskrármálin. Þá vill forseti geta þess að að loknum atkvæðagreiðslum fer fram umræða utan dagskrár um framtíðaruppbyggingu Háskólans á Akureyri. Málshefjandi er hv. þm. Hlynur Hallsson. Hæstv. menntamálaráðherra, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.