132. löggjafarþing — 17. fundur, 8. nóv. 2005.
Stjórn fiskveiða.
17. mál
Frú forseti. Þetta er nú óvart í stefnuskrá Frjálslynda flokksins, sem hv. þingmaður var kosinn út á. Ég vil minna hv. þingmann á að hann var ekki kosinn á þing til þess að munnhöggvast við mig, alls ekki. Ég vona að hv. þingmaður sjái sóma sinn í því að segja af sér þingmennsku. Hann var ekki kosinn á þeim forsendum að vera hér að munnhöggvast við fyrrum samherja sína.